já góðann daginn!;D
jebb samræmdu búin að dynja yfir unga fólkið síðan seinasta
miðvikudag og hefur mönnum nú gengið misvel en flestum þó
ágætlega

sem er gott! jebb seinasta prófið er svo á þeim
merkilega degi, á morguuun!

stærðfræðin rekur lestina þetta
skiptið, mjöög svo gaman

Ótrúlega gaman að vera að fara að taka seinasta alvöru prófið sitt
í grunnskóla, mjög sniðugt þykir mér! skemmtilegt að maður eigi
bara eftir þennan mánuð og svo er bara búinn grunnskólinn!Samt
svoltið skrítið...ég persónulega hefði ekki viljað sleppa
tíundabekk og fara beint í framhaldsskóla eins og boðið var uppá í
haust, ekki það að mér finnist gaman að sitja í tímum og læra,
heldur er þessi vetur búinn að vera óendanlega skemmtilegur og
maður er búinn að kinnast fullt af nýju fólki, og gera alveg fullt
af skemmtilegum hlutum!

Margt og mikið búið að gerast já!
jæja!þetter ágætt!
upprifjun seinustu daga:
föstudagurinn: próf um morguninn auðvitað!æji lesiði bara hjá sunnu
þarna neðar

laugardagur:þá var ég að mig minnir með henni maríu eikkað að
gjera...man samt ekki hvað

haha jæja svo klukkan sex fór ég niður
í frímúrarahús að þjóna í brúðkaupinu hjá Ellu og Hjalta! mjög svo
gaman sko! vorum að skenkja(haha fyndið orð það) kampavín og bera
matinn á borð og alls konar skemmtilegt dót! svo tókum við nokkur
létt dansspor líka;D gömludansarnir rokka sko!

hehe jæja...svo um
tólf sóttu Sonja (afmælisbarn),Laufey og Fríður okkur og við
skelltum okkur á rúntinn! Sonja alveg hörkudriver nýkomin með
próf

obbosslega gaman hjá okkur bara
Sunnudagur: Þann daginn var alveg ægilega gott veður svo að við
María ákváðum nú að nýta okkur það! Löbbuðum niður í Blómaval og
fengum okkur ís! jáhh ég fékk víst einhvern ægilegann hlaupasting á
leiðinni þangað eins og einhverjir urðu varir við:'D hahaha
maría!já og svo atvik eins og nei!nei! beygjum hérna María!
hlauptuuu!:'Dhahaha
jæja síðan vorum við búnar að vera að tala um að okkur langaði í
siglingu eða fara að vaða útí á eða eikkað skemmtó í þessari blíðu
en vorum nú samt hættar að hugsa um það og bjuggumst bara við því
að fara heim í sólbað eða eitthvað þega húm Adda mamma hennar Maríu
hringdi og sagði að hún væri að fara yfir sjóinn í gönguferð(æji
þið vitið þarna hinu meigin!) og við gætum komið með þangað og
farið að vaða eða eitthvað sniðugt! og við náttúrulega skelltum
okkur með henni!! og fórum að vaða þarna hahaha ættum meira segja
kajak áleiðinni hahahah!:'D jább þetta var stuð! síðan fór ég
eikkað að sökkva aðeins of langt svo að við snérum við og fórum að
gera stíflu hahahaha! vorum alveg eins og litlu krakkarnir nema
bara stærri!

haha jább stuð þetta! síðan bara fórum við heim til
hennar eikkað minnir mig og síðan um kveldið ætluðum við nú að gera
eitthvað skemmtó ég og halla því að það voru svo andskoti fáir að
fara í samfélagsfræðina og hringdum í Einar og Ívan og drógum þá og
Sunnu með okkur í kjarna! gífurlegt stuð þar bara!

haha samin
mjög svo athyglisverð vísa og svona

haha jább
Mánudagur: lestur! siðan bara niður á Amour og eikkað tjill þar..
heim, meiri lestur...og út að labba með maríu um
kveldið...sjölluðum örugglega um allt í heiminum skoh!
Þriðjudagur: Náttúrufræðipróóóf...svo fór maður bara heim og svo út
að borða

alltaf gaman að því..síðan klukkan fjögur er ég að fara
á blaðamannafund og verð þess vegna að fara að flýta mér með þetta
svo að ég eigi ekki eftir að líta út eins og gömul hryssa þarna eða
eitthvað


síðan náttúrulega verð ég að fara að læra stærðfræði
maður!! obbobbobb! jámm er þetta ekki bara ágætt?
jæja gangi öllum bara vel á morgun sem eru að fara í prófiiið
Begga:*